Fotbolti.net
19.08.26 - 22:30
Ívan Guðjón Baldursson

3. deild: Skellur fyrir KV - KÁ vann fallslaginn

3. deild: Skellur fyrir KV - KÁ vann fallslaginn
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Tveimur síðustu leikjum kvöldsins er lokið í 3. deildinni þar sem Augnablik og KÁ unnu gríðarlega dýrmæta sigra í fallbaráttunni.
3. deild: Hagstæð úrslit fyrir Garðsmenn
TENGT EFNI

3. deild: Hagstæð úrslit fyrir Garðsmenn

Augnablik hafði tapað fjórum leikjum í röð þegar kom að heimsókn í Vesturbæinn til að spila við KV sem þurfti sigur til að blanda sér í toppbaráttuna.

Það var Elvari Páli Sigurðssyni og félögum hans úr Kópavogi alveg sama um. Elvar Páll náði forystunni fyrir Augnablik og héldu gestirnir út til leiksloka, svo það reyndist eina mark leiksins.

Augnablik fer upp í 21 stig með þessum sigri og er núna fimm stigum fyrir ofan fallsvæðið þegar fjórar umferðir eru eftir af deildartímabilinu.

Þetta er skellur fyrir KV sem situr eftir í fimmta sæti, sjö stigum frá öðru sætinu dýrmæta.

Á sama tíma tók KÁ á móti Ými í mikilvægum fallbaráttuslag á milli tveggja liða sem voru jöfn á stigum. Heimamenn voru sterkari aðilinn á Ásvöllum og leiddu 2-0 í hálfleik.

KÁ jók forystuna eftir leikhlé og urðu lokatölur 5-2 eftir fjörugan leik. KÁ er því með 19 stig, þremur stigum fyrir ofan fallsæti.

KV 0 - 1 Augnablik
0-1 Elvar Páll Sigurðsson ('31 )

KÁ 5 - 2 Ýmir
1-0 Þórir Eiðsson ('8 )
2-0 Kristján Ólafsson ('41 )
3-0 Ágúst Jens Birgisson ('56 )
3-1 Steingrímur Dagur Stefánsson ('59 )
4-1 Bjarki Sigurjónsson ('65 )
4-2 Þórður Carl Guðmundsson ('77 )
5-2 Ólafur Sveinmar Guðmundsson ('85 )
3. deild: Skellur fyrir KV - KÁ vann fallslaginn
Canon

Mynd: Facebook-síða KÁ

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.