20.08.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Fannst látinn á leikvangi Charlton

Mynd: pinterest

Mynd: pinterest
Lögreglan í Suðausturhluta London er að rannsaka dauðsfall sem átti sér stað á leikvangi Charlton Athletic aðfaranótt þriðjudags.
33 ára karlmaður fannst látinn á leikvanginum og er talið að hann hafi dottið úr mikilli hæð.
Ljóst er að leikvangurinn var lokaður þegar atvikið átti sér stað og ekki er vitað hvað manninum gekk til eða hvernig hann komst inn á leikvanginn.
„Allir hjá Charlton Athletic senda fjölskyldu, vinum og vandamönnum viðkomandi einlægar samúðarkveðjur á þessum ótrúlega erfiðu tímum. Félagið heldur áfram að sýna yfirvöldum fullt samstarf við rannsókn málsins," segir meðal annars í yfirlýsingu frá Charlton.