19.08.26 - 23:16
Ívan Guðjón Baldursson
Vantar framherja og bakvörð en Flick er ánægður

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Spánarmeistarar Barcelona eru búnir að missa framherjana sína Robert Lewandowski og Ferran Torres í sumar án þess að kaupa menn til að fylla í skörðin.

TENGT EFNI
Abdelkarim og Raphinha afgreiddu Al-Ahly
Hinn 18 ára gamli Hamza Abdelkarim hefur spilað sem fremsti sóknarmaður í byrjunarliði Barca á undirbúningstímabilinu og er ljóst að Börsungum vantar einn til tvo nýja leikmenn sem geta leyst framherjastöðuna af hólmi.
Stórveldinu vantar einnig vinstri bakvörð til að veita hinum öfluga Alejandro Balde samkeppni. Deco er yfirmaður fótboltamála og segir að nýir leikmenn muni skrifa undir á næstu vikum. Joao Cancelo er einn þeirra.
„Við eigum eftir að fá nokkra leikmenn til viðbótar," sagði Deco í dag og svaraði Hansi Flick þjálfari einnig spurningum. Flick segist vera ánægður og hefur engar efasemdir um að Deco takist að fylla í skörðin sem vantar.
„Ég er ótrúlega ánægður með gæðin í hópnum, ég vil þakka Deco og forsetanum fyrir að byggja svona stórkostlegt lið fyrir mig," sagði Flick. „Við nældum okkur í besta miðjumann heims þegar við keyptum Rodri. Hann getur reynst okkur gríðarlega vel."
Barca hefur nýtt deildartímabil á Spáni á útivelli gegn Elche næsta sunnudagskvöld.