20.09.16 - 20:03
Jóhann Ingi Hafþórsson
Dagný: Skolum þetta af okkur og fögnum EM sætinu
Auglýsing

Dagný fer í tæklingu í leiknum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Dagný fer í tæklingu í leiknum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<i>„Þetta er skrítin tilfinning, við erum svekktar í dag en við erum á leiðinni í sturtu að skola þetta af okkur og halda áfram að fagna EM sætinu,\"</i> sagði Dagný Brynjarsdóttir eftir svekkjandi 2-1 tap gegn Skotum á Laugardalsvelli í dag.
ísland vinnur riðilinn og fer á EM þrátt fyrir tapið en Dagný var sérstaklega ósátt við fyrri hálfleik Íslands í dag.
ísland vinnur riðilinn og fer á EM þrátt fyrir tapið en Dagný var sérstaklega ósátt við fyrri hálfleik Íslands í dag.
„Í fyrri hálfleik vorum við skrefinu á eftir, þær voru á undan í fyrsta og annan bolta, við áttum erfitt með að spila á samherja og við komum okkur ekki alveg inn í leikinn.\"
Skotar skoruðu sigurmarkið úr víti og var Dagný ósátt við dóminn.
„Við fáum þetta víti í andlitið, þær ná að breika á okkur en þetta var ódýrt víti.\"
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Skotar skoruðu sigurmarkið úr víti og var Dagný ósátt við dóminn.
„Við fáum þetta víti í andlitið, þær ná að breika á okkur en þetta var ódýrt víti.\"
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.





