Sjötta umferð enska úrvalsdeildartímabilsins fer af stað innan skamms þegar Southampton tekur á móti Bournemouth í áhugaverðum leik.
Bæði lið hafa farið þokkalega vel af stað og eru með sjö stig eftir fimm umferðir, aðeins einu stigi frá þriðja sætinu.
Heimamenn gera tvær breytingar á liðinu sem lagði nýliða Sheffield United á útivelli um síðustu helgi. Kevin Danso kemur inn í hjarta varnarinnar og sendir Maya Yoshida á bekkinn og þá kemur Nathan Redmond inn á kantinn fyrir Moussa Djenepo sem er frá vegna meiðsla.
Djenepo gerði eina markið og var langbesti maður vallarins í sigrinum gegn Sheffield.
Eddie Howe gerir eina breytingu á liði Bournemouth eftir 3-1 sigur gegn Everton. Lewis Cook fer á bekkinn fyrir Jefferson Lerma sem kemur inn á miðjuna.
Southampton: Gunn, Cedric, Danso, Vestergaard, Bednarek, Hojbjerg, Ward-Prowse, Romeu, Boufal, Redmond, Adams.
Varamenn: McCarthy, Yoshida, Stephens, Long, Ings, Armstrong, Bertrand.
Bournemouth: Ramsdale, Rico, Stacey, S. Cook, Ake, Lerma, Billing, H. Wilson, King, Solanke, C. Wilson.
Varamenn: Boruc, Surman, Ibe, L. Cook, Fraser, Simpson, Mepham.
Athugasemdir