Samkvæmt heimildum Fótbolta.net eru Haukar í þjálfaraleit eftir að Igor Bjarni Kostic ákvað að hætta með liðið.
Haukar höfnuðu í níunda sæti 2. deildarinnar en þetta var annað tímabil hans með liðið.
Rætt var um það í Innkastinu að þetta gæti alveg verið nokkuð spennandi starf í þessum þjálfarahræringum sem eru í gangi.

„Þeir eru með geggjaða aðstöðu og þetta er alvöru félag," sagði Ingólfur Sigurðsson í Innkastinu.
„Það er líka mikil saga í að búa til alvöru leikmenn sem hafa einhverra hluta vegna ekki náð að brjóta sig inn í Haukaliðið en enda á að blómstra annars staðar," sagði Sverrir Mar Smárason.
Athugasemdir