Lið vikunnar í enska - Lingard og Mane í liðinu

Brentford vann Wolves 2-0, Brentford lagði Úlfana og Arsenal vann sinn fyrsta sigur á tímabilinu með því að leggja Burnley. Aston Villa lagði Everton í skemmtilegum leik, Brighton heldur áfram að gera góða hluti og vann Leicester og Watford vann Norwich í nýliðaslag 3-1.

Markvörður: David de Gea (Manchester United) - Varði vítaspyrnu frá Mark Noble í uppbótartíma og tryggði United sigurinn.

Mynd: EPA

Varnarmaður: Matty Cash (Aston Villa) - Skoraði frábært mark í sigrinum gegn Everton.

Mynd: Getty Images

Varnarmaður: Kristoffer Ajer (Brentford) - Átti öfluga tæklingu á Hwang Hee-chan og hjálpaði nýliðunum að halda hreinu og innbyrða þrjú mikilvæg stig.

Mynd: Getty Images

Varnarmaður: Gabriel (Arsenal) - Var svakalega öflugur í vörn Arsenal.

Mynd: EPA

Varnarmaður: Thiago Silva (Chelsea) - Þessi 36 ára leikmaður skoraði í sigrinum gegn Spurs.

Mynd: EPA

Miðjumaður: James Milner (Liverpool) - Leysti Trent af og var frábær í hægri bakverðinum.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Mateo Kovacic (Chelsea) - Hefur verið frábær í upphafi móts.

Mynd: epa

Miðjumaður: Jesse Lingard (Manchester United) - Skoraði stórglæsilegt mark gegn liðinu sem hann spilaði fyrir á síðasta tímabili.

Mynd: Getty Images

Framherji: Sadio Mane (Liverpool) - Er kominn með 100 mörk fyrir Liverpool.

Mynd: EPA

Framherji: Ivan Toney (Brentford) - Stórkostlegur útisigur hjá Brentford og Toney skoraði af vítapunktinum.

Mynd: Getty Images

Framherji: Ismaila Sarr (Watford) - Skoraði tvö afskaplega falleg mörk.

Mynd: Getty Images


Mynd: BBC




