Mainoo fær nýjan samning - Goretzka og Gomes orðaðir við Man Utd - Bremer og Kerkez við Liverpool
   fös 20. september 2024 09:30
Elvar Geir Magnússon
Þeir dæma undanúrslitaleiki Fótbolti.net bikarsins
Gunnar Oddur Hafliðason.
Gunnar Oddur Hafliðason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Á morgun laugardag verða undanúrslitaleikir Fótbolti.net bikarsins á dagskrá, Selfoss og Árbær mætast á JÁVERK-vellinum á Selfossi og á sama tíma tekur KFA á móti Tindastóli í Fjarðabyggðarhöllinni.

Báðir leikirnir hefjast klukkan 13. Úrslitaleikurinn verður svo föstudagskvöldið 27. september á Laugardalsvelli.

Víðismenn unnu keppnina, sem er bikarkeppni neðri deilda, þegar hún var haldin í fyrsta sinn á síðasta ári. Selfyssingar eru sigurstranglegastir í ár, eftir að hafa unnið 2. deildina. Árbær hafnaði í þriðja sæti 3. deildar. Tindastóll vann 4. deildina og KFA endaði í fimmta sæti 2. deildar.

Gunnar Oddur Hafliðason dæmir undanúrslitaleikinn á Selfossi. Ragnar Arelíus Sveinsson og Rögnvaldur Þ Höskuldsson verða aðstoðardómarar og Valur Gunnarsson verður eftirlitsmaður Fótbolta.net.

Guðmundur Páll Friðbertsson dæmir leikinn í Fjarðabyggðarhöllinni. Guðni Freyr Ingvason og Jovan Subic verða aðstoðardómarar.

laugardagur 21. september
13:00 Selfoss-Árbær (Gunnar Oddur Hafliðason)
13:00 KFA-Tindastóll (Guðmundur Páll Friðbertsson)
Athugasemdir
banner
banner
banner