Guðjón Þórðarson, sem tók við sem þjálfari Víkinga í Ólafsvík í sumar, mun ekki þjálfa liðið áfram.
Þetta staðfesti Guðjón í Facebook-færslu í dag.
Þetta staðfesti Guðjón í Facebook-færslu í dag.
Guðjón kveðst í færslunni hafa haft áhuga á að starfa áfram í Ólafsvík en segir að mismunandi áherslur hafi ollið því að samkomulag hafi ekki náðst.
Guðjón var ráðinn til starfa í kjölfarið á því að Jón Páll Pálmason var látinn fara. Undir stjórn Guðjóns vann Víkingur þrjá leiki og gerði fjögur jafntefli í fjórtán leikjum.
Víkingur endaði í 9. sæti Lengjudeildarinnar.
Athugasemdir