Fotbolti.net
20.11.26 - 19:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Frank og Toney gætu sameinast á ný

Frank og Toney gætu sameinast á ný
Canon

Mynd: EPA

Ivan Toney, leikmaður sádi arabíska liðsins Al-Ahli, er á óskalista Crystal Palace, samkvæmt heimildum Teamtalk. Þá vill félagið einnig fá Conor Gallagher frá Tottenham í janúar.

Gallagher var á láni hjá Crystal Palace frá Chelsea tímabilið 2021-2022 þar sem hann spilaði 39 leiki og skoraði átta mörk.
Jean-Philippe Mateta var nálægt því að ganga til liðs við AC Milan í janúar en það gekk ekki eftir vegna meiðsla franska framherjans. Hann gæti verið á förum eftir áramót og Palace vill fá Toney í hans stað.

Toney er fyrrum leikmaður Brentford en hann spilaði þar undir stjórn Thomas Frank sem var ráðinn stjóri Palace á dögunum.

Toney skoraði 72 mörk í 141 leik. Hann er orðaður við endurkomu í úrvalsdeildina en Newcastle hefur einnig áhuga á honum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.