Fotbolti.net
20.11.26 - 21:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Grótta með tvo þjálfara í Bestu (Staðfest)

Matti snýr aftur í Gróttu

Grótta með tvo þjálfara í Bestu (Staðfest)
Canon

Mynd: Grótta

Kvennaboltinn
Matthías Guðmundsson er tekinn við Gróttu og mun stýra liðinu ásamt Dominic Ankers í Bestu deildinni næsta sumar. Ankers stýrði Gróttu til sigurs í Lengjudeildinni síðasta sumar.

Matthías þekkir vel til hjá Gróttu en hann stýrði liðinu sumarið 2024 og Ankers var aðstoðarþjálfari liðsins.
Matthías hætti sem þjálfari Vals eftir fall liðsins síðasta sumar.

„Það er okkur gríðarlegt ánægjuefni að fá Matta aftur til starfa hjá félaginu. Ráðningin endurspeglar metnað félagsins til að byggja upp sterkt og faglegt umhverfi fyrir leikmenn," sagði Arnar Axelsson, yfirmaður fótboltamála hjá Gróttu.

„Matti þekkir félagið vel og býr jafnframt yfir dýrmætri reynslu úr efstu deild, bæði sem þjálfari og leikmaður. Sú reynsla mun nýtast liðinu vel á sínu fyrsta tímabili í Bestu deild kvenna.’’

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.