20.11.26 - 19:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ronaldo skoraði og klúðraði víti - Toney frábær

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Cristiano Ronaldo var á skotskónum þegar Al-Nassr tapaði 3-1 gegn Al-Ahli í sádi arabísku deildinni í kvöld.
Hann kom Al-Nassr yfir eftir stundafjórðung en þetta var 986. mark hans á ferlinum. Hann fékk tækifæri til að bæta öðru marki við stuttu síðar en skaut í stöngina úr víti.

Galeno jafnaði metin fyrir Al-Ahli undir lok fyrri hálfleik eftir sendingu frá Ivan Toney. Toney kom liðinu síðan yfir með marki úr vítaspyrnu og Ibanez tryggði Al-Ahli sigurinn eftir sendingu frá Galeno.
Al-Nassr er í 3. sæti með 28 stiig eftir 12 umferðir. Liðið er tveimur stigum á eftir toppliði Al-Hilal sem á leik til góða.
Al-Ahli steinlá 6-1 gegn Al-Shabab í síðustu umferð en svaraði með glæsibrag í kvöld. Liðið er í 4. sæti með 24 stig.