13.10.26 - 16:06
Kári Snorrason
Víkingar með Óla Neuer í sigtinu

Fengið viðurnefnið Óli Neuer.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron Snær er aðalmarkvörður Víkings.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fengið viðurnefnið Óli Neuer.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslandsmeistarar Víkings hafa samkvæmt heimildum Fótbolta.net áhuga á Ólafi Erni Ásgeirssyni, markverði HK. Félögin hafa rætt sín á milli en Víkingar eiga eftir að leggja fram tilboð í Ólaf.
Ólafur er 23 ára gamall uppalinn HK-ingur og hefur hann varið mark liðsins undanfarin tvö tímabil. Þar áður lék hann á láni með Völsungi og ÍR í 2. deildinni.
Markvörðurinn hefur vakið athygli fyrir frammistöður sínar með HK í sumar og hefur hann fengið viðurnefnið Óli Neuer. Sandor Matus, markvarðarþjálfari HK, sagði í samtali við Fótbolta.net fyrir um ári síðan viðurnefnið ekki hafa verið gripið úr lausu lofti.

Hjá Víkingi er Aron Snær Friðriksson aðalmarkvörður. Ögmundur Kristinsson gekk í raðir Víkings í sumar og skrifaði hann undir samning út tímabilið við félagið.
Víkingur er að skoða markmannsmálin og hafa þeir verið orðaðir við Ásgeir Orra Magnússon, markvörð Keflavíkur og Lúkas Blöndal Petersson, sem er á mála hjá Hoffenheim.