Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   lau 21. janúar 2023 15:40
Aksentije Milisic
Myndband: Sjóðheitur Mitoma með frábært mark gegn Leicester
Mynd: Getty Images

Japanski leikmaðurinn Kaoru Mitoma hefur verið að spila frábærlega með Brighton á þessari leiktíð en hann gekk til liðsins frá Kawasaki Frontale árið 2021.


Hann var á láni hjá Union Saint-Gilloise í Belgíu á síðustu leiktíð en á þessari hefur hann svo sannarlega gripið tækifærið í treyju Brighton.

Hann var rétt í þessu að skora glæsilegt mark á King Power vellinum í Leicester og koma Brighton í forystu.

Hann fékk boltann á hægri kantinum, lék langlega inn á völlinn áður en hann skaut knettinum glæsilega upp í fjærhornið.

Skemmtilegur og teknínskur leikmaður hann Mitoma en þetta mjög svo smekklega mark hans má sjá hérna.


Athugasemdir
banner
banner
banner