Aron Elís Þrándarson, leikmaður OB, meiddist í 3-2 tapi gegn Álaborg í dönsku úrvalsdeildinni í kvöld.
Aron Elís fór meiddur af velli á 17. mínútu leiksins en hann hefur spilað glimrandi vel með liðinu í síðustu leikjum. Sveinn Aron Guðjohnsen var fjarri góðu gamni í dag.
OB er í harðri baráttu í fallbarátturiðli deildarinnar en liðið er í 3. sæti riðilsins með 30 stig.
Hjörtur Hermannsson spilaði þá allan leikinn í vörn Bröndby sem vann Nordsjælland 3-0.
Bröndby er í 2. sæti í meistarariðlinum með 49 stig, aðeins stigi á eftir Midtjylland.
Athugasemdir