Nýr varabúningur Vestra var kynntur í kvöld en karlaliðið mun þreyta frumraun sína í búningnum gegn Grindavík í fyrstu umferð Lengjudeildarinnar um helgina.
Vestri varð bikarmeistari á síðasta ári og kom sér í forkeppni Evrópudeildarinnar.
Um haustið féll Vestri niður um deild og verður það því fyrsta sinn í fjórtán sem lið í næst efstu deild spilar í Evrópu. Þórsarar gerðu það árið 2012, en þeir komu sér í Evrópukeppnina með því að komast í úrslitaleik bikarsins þar sem þeir töpuðu fyrir KR.
Búningur Vestra var sérstaklega gerður þar sem það fagnar tíu ára afmæli sínu og þátttöku sinni í Evrópukeppni. Útkoman var björt hvít treyja með bláum smálínum þar sem má sjá útlínur af Bolungarvík.
Fyrstu eintök af treyjunni verða í sölu í sjoppunni um helgina, en þó í afar takmörkuðu magni. Ný heimatreyja liðsins verður svo tilkynnt á næstunni.



