Liverpool hefur áhuga á leikmanni Hoffenheim - Norskur bakvörður orðaður við Man Utd - Real Madrid horfir löngunaraugum til Rodri
   fim 21. maí 2026 10:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kraftröðunin fyrir HM: Tóku metið af okkur Íslendingum
Sæti 48 til 45
Haítí fagnar marki gegn Íslandi í mars.
Haítí fagnar marki gegn Íslandi í mars.
Mynd: EPA
Jean Richner-Bellegard í leiknum gegn Íslandi.
Jean Richner-Bellegard í leiknum gegn Íslandi.
Mynd: EPA
Wilson Isidor reynir að ná boltanum af Stefáni Teiti Þórðarsyni.
Wilson Isidor reynir að ná boltanum af Stefáni Teiti Þórðarsyni.
Mynd: EPA
Það var stemning í Curacao þegar lið þeirra komst á HM í fyrsta sinn, fámennasta þjóð sögunnar til að spila í lokakeppni HM.
Það var stemning í Curacao þegar lið þeirra komst á HM í fyrsta sinn, fámennasta þjóð sögunnar til að spila í lokakeppni HM.
Mynd: EPA
Dick Advocaat hætti en tók aftur við.
Dick Advocaat hætti en tók aftur við.
Mynd: EPA
Tahith Chong spilar með landsliði Curacao.
Tahith Chong spilar með landsliði Curacao.
Mynd: EPA
Grænhöfðaeyjar eru í fyrsta sinn með á HM.
Grænhöfðaeyjar eru í fyrsta sinn með á HM.
Mynd: EPA
Ryan Mendes fer fyrir sínu liði.
Ryan Mendes fer fyrir sínu liði.
Mynd: EPA
Bubista, þjálfari Grænhöfðaeyja.
Bubista, þjálfari Grænhöfðaeyja.
Mynd: EPA
Panama er að taka þátt í annað sinn.
Panama er að taka þátt í annað sinn.
Mynd: EPA
Danski Spánverjinn Thomas Christiansen.
Danski Spánverjinn Thomas Christiansen.
Mynd: EPA
Adalberto Carrasquilla er lykilmaður fyrir Panama.
Adalberto Carrasquilla er lykilmaður fyrir Panama.
Mynd: EPA
Það eru núna akkúrat þrjár vikur í það að HM í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó fari að rúlla og spennan er heldur betur farin að magnast.

HM hefur aldrei verið stærra og líklega hefur bara enginn íþróttaviðburður verið stærri en þetta. Það mæta 48 lið til leiks en við á Fótbolta.net ætlum að kynna liðin til leiks í sérstakri kraftröðun (e. power rankings) þar sem við röðum liðunum niður frá því slakasta til hins besta. Við tökum fjögur lið fyrir í hverri frétt fram að móti og kynnum við liðin aðeins til sögunnar. Við höldum svo áfram kraftröðuninni á meðan mótinu stendur.

Við byrjum á þeim liðum sem við teljum fyrirfram vera þau fjögur slökustu á mótinu.

48. Haítí
Eru í 83. sæti á heimslistanum.

Haítí verður á HM í aðeins annað sinn í sögu sinni og í fyrsta sinn síðan árið 1974. Stækkað mót hjálpaði vissulega mörgum þjóðum inn um dyrnar, en Haítí nýtti tækifærið af miklum krafti og endaði fyrir ofan þjóðir á borð við Hondúras og Kosta Ríka í undankeppninni. Sébastien Migné stýrir liðinu, en franski þjálfarinn náði því ótrúlega afreki að koma Haítí á heimsmeistaramótið án þess að hafa nokkurn tíma komið til landsins sjálfs. Öryggisástandið á Haítí hefur lengi verið afar slæmt, ferðamönnum er varað við ferðum þangað og vopnuð glæpagengi hafa náð gríðarlegum ítökum í höfuðborginni. Haítí hefur ekki getað spilað heimaleiki sína heima fyrir heldur þurft að leika þá á Curacao, hundruðum kílómetra frá eigin landi. Þá býr enginn leikmaður landsliðsins á Haítí. Á vellinum hefur þó verið ýmislegt jákvætt. Þrátt fyrir tap gegn Túnis og jafntefli við okkur Íslendinga í mars sýndi liðið ákveðin fyrirheit. Wilson Isidor skoraði sitt fyrsta landsliðsmark gegn Íslandi og Josué Casimir vakti athygli með hraða sínum, tækni og vinnuframlagi. Raunhæft markmið Haítí verður líklega ekki mikið meira en að reyna að stela stigum í riðlakeppninni. En miðað við allt sem liðið hefur þurft að glíma við utan vallar er það eitt og sér merkilegt að sjá Haítí aftur á stærsta sviði heimsfótboltans.

Þjálfarinn: Sebastian Migne er 53 ára Frakki sem tók við Haítí fyrir rúmum tveimur árum síðan. Hann átti ekki merkilegan leikmannaferil en hafði gert vel í því að þjálfa ýmis landslið í Afríku áður en hann tók við Haítí. Hann stýrði Kongó, Keníu og Miðbaugs-Gíneu og var aðstoðarþjálfari Kamerún áður en hann tók við Haítí og kom þeim á HM.

Lykilmaður: Jean-Ricner Bellegarde (Wolves) er kraftmikill miðjumaður sem spilaði fyrir yngri landslið Frakklands en ákvað að spila fyrir Haítí í ágúst í fyrra. Hann hefur spilað meira en 80 leiki fyrir Wolves í ensku úrvalsdeildinni og verður í stóru hlutverki í sumar.

Gaman að fylgjast með: Wilson Isidor (Sunderland) skoraði sitt fyrsta landsliðsmark fyrir Haítí gegn Íslandi í mars. Eins og Bellegarde ákvað að hann að spila fyrir Haítí eftir að leiki með yngri landsliðum Frakklands. Sóknarmaður sem gaman verður að fylgjast með í sumar.

Leikir á HM: Skotland í Boston (13. júní); Brasilía í Philadelphia (19. júní); Marokkó í Atlanta (24. júní).

47. Curacao
Eru í 82. sæti á heimslista FIFA.

Curacao verður á HM í fyrsta sinn og er fámennasta þjóð frá upphafi til að tryggja sér sæti á heimsmeistaramóti. Eyjan, sem hefur um 156 þúsund íbúa, tók þar með metið af okkur Íslendingum. Curacao varð sjálfstætt land innan Konungsríkis Hollands fyrir aðeins 15 árum og er eitt af fjórum nýliðaliðum mótsins. Dick Advocaat skráði sig í sögubækurnar með því að koma Curacao á HM en miklar vendingar hafa orðið á þjálfaramálunum undanfarna mánuði. Advocaat lét af störfum af persónulegum ástæðum vegna heilsufarsvandamála hjá dóttur sinni og Fred Rutten tók við liðinu. Tími Rutten varð hins vegar stuttur og óánægja ríkti með störf hans eftir 2-0 tap gegn Kína og 5-1 skell gegn Ástralíu í marsverkefninu. Nú er Advocaat mættur aftur til starfa stuttu fyrir mót eftir að staðan hjá dóttur hans batnaði og Curacao vonast til að reynsla hollenska stjórans geti komið liðinu á réttan kjöl fyrir stærsta verkefni í sögu þjóðarinnar. Liðið byggir að stórum hluta á leikmönnum með tengingar við hollenskan fótbolta og inn á milli sjást vissulega gæði. Vandamálin hafa þó verið augljós, sérstaklega í varnarleiknum og þegar líður á leiki. Gegn Ástralíu fékk Curacao til að mynda á sig fjögur mörk á 17 mínútna kafla undir lokin. Raunhæft markmið Curacao verður líklega ekki mikið meira en að reyna að ná í stig í riðlakeppninni. En eftir að hafa orðið minnsta þjóð HM-sögunnar til að komast á mótið hefur liðið þegar tryggt sér sess í sögubókunum.

Þjálfarinn: Eins og áður kemur fram er Dick Advocaat mættur aftur til starfa eftir að hafa hætt til að sinna dóttur sinni sem var veik. Advocaat er 78 ára gamall og verður í sumar elsti þjálfari sögunnar á HM. Advocaat hefur víða komið við á löngum ferli, meðal annars hefur hann þrívegis tekið við landsliði Hollands og einnig stýrt Sameinuðu arabísku furstadæmunum, Írak og Serbíu.

Lykilmaður: Leandro Bacuna (Igdir) er afar reynslumikill miðjumaður sem mun bera fyrirliðabandið hjá Curacao í sumar. Lék lengi á Englandi og meðal annars með Aston Villa en spilar í Tyrklandi í dag. Bróðir hans, Juninho, mun spila með honum á miðsvæðinu.

Gaman að fylgjast með: Tahith Chong (Sheffield United) er leikmaður sem aðdáendur enska boltans vita vel af, og líklega er það aðallega út af hári hans. Með miklar og stórar krullur sem munu vekja athygli á mótinu í sumar.

Leikir á HM: Þýskaland í Houston (14. júní); Ekvador í Kansas City (20. júní); Fílabeinsströndin í Philadelphia (25. júní).

46. Grænhöfðaeyjar
Eru í 69. sæti á heimslista FIFA.

Grænhöfðaeyjar verða á HM í fyrsta sinn í sumar og fáir hefðu trúað því fyrir nokkrum árum að þessi litla eyþjóð myndi tryggja sér sæti á stærsta sviði heimsfótboltans. Fyrir þjóð sem hefur verið að byggja sig hægt og rólega upp í afrískum fótbolta er þetta sögulegt augnablik. Fyrirliðinn Ryan Mendes á stóran þátt í afrekinu. Eftir að hafa hjálpað Grænhöfðaeyjum að komast inn á Afríkukeppnina í fyrsta sinn árið 2013 hefur reynsluboltinn nú einnig leitt liðið á heimsmeistaramót og fest sig endanlega í sessi sem ein stærsta landsliðsgoðsögn þjóðarinnar. Mendes sagði sjálfur eftir að HM-sætið var tryggt að hann ætti enn erfitt með að trúa því sem liðið hefði afrekað. Grænhöfðaeyjar hafa undanfarin ár skapað sér ákveðna sjálfsmynd með skipulögðum fótbolta sem snýr að því að halda bolta innan liðs og liðið hefur oft staðið sig vel á Afríkumótinu. Nú bíður hins vegar allt annað verkefni. Á HM verða andstæðingarnir sterkari, hraðinn meiri og spurningin hvort liðið þori að halda sig við sinn leik gegn stærstu þjóðum heims. Raunveruleikinn er líka sá að fáir leikmenn liðsins spila á allra hæsta stigi félagsliðaboltans og hópurinn er dreifður um ýmsar deildir sem fá sjaldnast mikla athygli á alþjóðavísu. Fyrir Grænhöfðaeyjar er sjálf þátttakan því gríðarlegt afrek. Raunhæft markmið verður líklega að reyna að gera sig gildandi í riðlakeppninni og sýna að liðið eigi erindi á þetta svið. En eftir að hafa skrifað einn óvæntasta kafla undankeppninnar væri kannski ekki skynsamlegt að útiloka annað kraftaverk.

Þjálfarinn: Bubista er fyrrum fyrirliði Grænhöfðaeyja og hefur stýrt landsliðinu frá árinu 2020. Hann hefur náð eftirtektarverðum árangri á skömmum tíma; kom liðinu á Afríkukeppnina 2021 og 2023, þar sem Grænhöfðaeyjar fóru alla leið í átta liða úrslit, áður en hann tryggði þjóðinni fyrsta HM-sætið síðasta haust. Fyrir þann árangur var hann valinn þjálfari ársins í afrískum fótbolta árið 2025. Bubista, sem fékk viðurnefni sitt frá fæðingarstaðnum Boa Vista, þjálfaði nokkur félagslið í heimalandinu áður en hann tók við landsliðinu.

Lykilmaður: Ryan Mendes (Igdir) er bæði leikjahæsti og markahæsti leikmaður í sögu Grænhöfðaeyja. Hann er orðinn 36 ára gamall og er að kóróna sinn frábæra landsliðsferil á þessu móti. Hann er kantmaður sem spilaði með Lille og Nottingham Forest fyrir nokkrum árum en leikur í dag í Tyrklandi með sama liði og fyrirliði Curacao.

Gaman að fylgjast með: Sidny Lopes Cabral (Benfica) er bakvörður sem getur spilað báðum megin á vellinum. Var keyptur til portúgalska stórliðsins Benfica í janúar á þessu ári eftir að hafa heillað með Estrela da Amadora. Hefur komið sterkur inn í landsliðs Grænhöfðeyja.

Leikir á HM: Spánn í Atlanta (15. júní; Úrúgvæ í Miami (21. júní); Sádi-Arabía í Houston (26. júní).

45. Panama
Eru í 33. sæti á heimslista FIFA.

Panama er komið aftur á HM eftir að hafa misst af mótinu árið 2022. Með Bandaríkin, Mexíkó og Kanada sjálfkrafa komin inn sem gestgjafar opnaðist ákveðið tækifæri í CONCACAF-riðlinum og Panama nýtti það ágætlega. Liðið tapaði ekki leik í undankeppninni, vann sjö af tíu leikjum sínum og fékk aðeins fimm mörk á sig. Thomas Christiansen hefur stýrt Panama frá árinu 2020 og ólíkt mörgum landsliðum á þessu stigi hefur sambandið sýnt þolinmæði. Sú ákvörðun virðist hafa skilað sér, enda hefur Panama verið nokkuð stöðugt lið síðustu ár og farið traustum skrefum í rétta átt. Það breytir þó ekki því að verkefnið á HM lítur afar illa út. Panama dróst í erfiðan riðil með Englandi, Króatíu og Gana og það er ekki raunhæfur möguleiki að komast áfram. Panama á heldur ekki góðar minningar frá sinni fyrstu og einu HM-þátttöku árið 2018. Þar tapaði liðið öllum þremur leikjum sínum, fékk á sig ellefu mörk og var langt frá því að geta keppt við lið eins og England og Belgíu. Markmið Panamamanna verður fyrst og fremst að sýna betri útgáfu af sjálfum sér en þá. Liðið fór ósigrað í gegnum undankeppnina og er komið skipulagðara inn á mótið en fyrir átta árum. En í riðli af þessari stærðargráðu gæti reynst erfitt verkefni að skora jafnvel eitt mark.

Þjálfarinn: Thomas Christiansen hefur stýrt Panama frá árinu 2020 og náð fínum árangri. Christiansen er áhugaverð blanda af dönsku og spænsku; fæddur í Danmörku af dönskum föður og spænskri móður og lék sem framherji meðal annars með Barcelona, Osasuna og Hannover á leikmannaferlinum. Hann spilaði tvo A-landsleiki fyrir Spán og hefur byggt upp áhugaverðan þjálfaraferil þar sem hann stýrði meðal annars Leeds frá 2017 til 2018. Undir hans stjórn er Panama komið aftur á stærsta svið heimsfótboltans.

Lykilmaður: Adalberto Carrasquilla (Pumas) er skemmtilegur miðjumaður sem er leikstjórnandinn í liði Panama og sér um það að hlutirnir tikki inn á miðsvæðinu. Hann hefur átt frábæran landsliðsferil og var valinn besti leikmaður í Gullbikarnum, landsliðakeppni Norður- og Mið- Ameríku, árið 2023.

Gaman að fylgjast með: Kadir Barría (Botafogo) er 18 ára gamall sóknarmaður sem heillaði ungur að árum njósnara frá brasilíska félaginu Botafogo. Hann er aðeins annar leikmaðurinn frá Panama sem spilar í brasilísku deildinni og hefur þegar spilað þrjá landsleiki, og skorað eitt mark, þrátt fyrir að vera enn táningur.

Leikir á HM: Gana í Toronto (17. júní); Króatía í Toronto (23. júní); England í New York (27. júní).

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner
banner