Fotbolti.net
21.05.26 - 12:11
Kári Snorrason

Verður Neestrup næsti stjóri Sverris?

Neestrup á Kópavogsvelli í Evrópuleik FCK og Breiðabliks fyrir tæpum þremur árum.

Neestrup á Kópavogsvelli í Evrópuleik FCK og Breiðabliks fyrir tæpum þremur árum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jacob Neestrup er í viðræðum við gríska félagið Panathinaikos um að taka við sem næsti stjóri liðsins.

Neestrup var rekinn sem þjálfari FC Kaupmannahafnar í Danmörku fyrr á árinu en hann hafði stýrt liðinu í um fjögur ár.

Danski miðillinn Bold segir Panathinaikos hafa boðið Neestrup tveggja ára samning með möguleika á árs framlengingu.
Landsliðsmaðurinn Sverrir Ingi Ingason er leikmaður Panathinaikos og hefur verið hjá félaginu í um tvö ár.

Hinn geðþekki Rafa Benitez tók við sem stjóri Panathinaikos í vetur en hann mun ekki halda áfram með liðið á næstu leiktíð.

Liðið mun leika í forkeppni Sambandsdeildarinnar og yrði það fyrsta verkefni Neestrup taki hann við liðinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.