21.06.05 - 21:16
Arnar Geir Halldórsson
Mohammed Camara til Celtic (Staðfest)

Mohammed Camara í leik með Burnley gegn Liverpool

Mohammed Camara hefur komist að samkomulagi við Celtic um kaup og kjör en hann á aðeins eftir að ganga í gegnum læknisskoðun sem hann mun gangast undir á fimmtudaginn kemur. Camara mun vera fyrstu kaup Gordons Strachan hjá Celtic.
Camara sem er 29 ára vinstri bakvörður lék seinast með Burnley en Ipswich ætluðu sér að fá hann en þeir hættu við þarsem þeir komust ekki í Úrvalsdeildina.
Auk Camara gæti framherjinn Maciej Zurawski farið á Celtic Park en hann vonast til að ganga frá 2,2 milljón punda félagaskiptum frá Wisla Krakow. Greinilegt er að Celtic ætla sér stóra hluti á næsta tímabili en þeir misstu Skoska titilinn í hendur erkifjendanna í Rangers á lokasprettinum.
Martin O´Neill fyrrum stjóri Celtic hafði haft auga á Camara en hann hætti með liðið í síðasta mánuði til að eyða meiri tíma með eiginkonu sinni, Geraldine sem er alvarlega veik.