Fotbolti.net
21.06.05 - 22:12
Magnús Már Einarsson

Del Horno til Chelsea (Staðfest)

Del Horno til Chelsea (Staðfest)
Canon
Chelsea hefur keypt vinstri bakvörðinn Asier del Horno frá Athletic Bilbao á 8 milljónir punda. Del Horno sem er 24 ára hefur gert þriggja ára samning við Chelsea en búið er að orða hann við liðið að undanförnu.
Del Horno sem er spænskur landsliðsmaður hefur verið hjá Athletic frá því að hann var 11 ára en hann kemur til með að styrkja vinstri bakvarðarstöðuna þar sem Wayne Bridge hefur í raun verið eini leikmaður Chelsea í þeirri stöðu eftir að Celestine Babayaro fór frá liðinu til Newcastle í janúar.

Jose Mourinho stjóri Chelsea sagði við heimasíðu liðsins: ,,Asier er framúrskarandi landsliðsmaður sem mun koma með gæði inn í hópinn í stöðu sem við þurftum að styrkja. Ég er viss um að hann verður lykilmaður þar sem Chelsea heldur áfram að reyna að ná þeim markmiðum sínum að gera betur bæði á Englandi og í Meistaradeildinni."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.