3. deild: KF komið á flug eftir erfiða byrjun

KF er komið með þrjá sigra í röð

Mynd: KF/Instagram

KV kom til baka gegn Sindra og vann

Mynd: KV/Instagram

KF er komið með þrjá sigra í röð

Mynd: KF/Instagram
KF er komið með þrjá sigra í röð í 3. deild karla, en liðið bar sigur úr býtum gegn Augnabliki, 3-1, í Fífunni í gær.
KF fór í gegnum fyrstu sex leiki tímabilsins án sigurs, sem getur oft sett sitt mark á leikmenn og lið. Það virðist hins vegar ekki eiga við um KF.
Liðið er nú komið á frábært skrið. Jakob Auðun Sindrason skoraði tvívegis eftir föst leikatriði og Thomas Lamaille gerði þriðja markið þegar hann komst inn í slaka sendingu heimamanna, keyrði í gegn og afgreiddi Augnablik.
KF hefur þar með unnið þrjá leiki í röð og er taplaust í síðustu fjórum leikjum sínum. Liðið er í fimmta sæti með 12 stig en Augnablik er í sjöunda sæti með 11 stig.
KV vann þá stórkostlegan 3-2 endurkomusigur á Sindra. Heimamenn komust í tveggja marka forystu á rúmum hálftíma, en Samúel Már Kristinsson gaf gestunum von með marki undir lok fyrri hálfleiks.
Gunnar Magnús Gunnarsson jafnaði metin strax í upphafi síðari hálfleiks og þegar aðeins fjórar mínútur voru eftir varð dramatíkin algjör. Jóhannes Adolf Gunnsteinsson, leikmaður Sindra, varð þá fyrir því óláni að setja boltann í eigið net.
Ótrúleg endurkoma hjá KV, sem þurfti svo sannarlega á sigrinum að halda eftir þrjú töp í röð. KV er í sjötta sæti með 12 stig en Sindri er í tíunda sæti með átta stig.
Úrslit og markaskorarar:
Augnablik 1 - 3 KF
0-1 Jakob Auðun Sindrason ('31 )
1-1 Guðmundur Andri Ólason ('37 )
1-2 Jakob Auðun Sindrason ('48 )
1-3 Thomas Lamaille ('87 )
Sindri 2 - 3 KV
1-0 Eiður Snorri Bjarnason ('19 , sjálfsmark)
2-0 Patrekur Máni Ingólfsson ('32 )
2-1 Samúel Már Kristinsson ('40 )
2-2 Gunnar Magnús Gunnarsson ('47 )
2-3 Jóhannes Adolf Gunnsteinsson ('86 , sjálfsmark)

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víðir | 11 | +14 | 25 |
| 2 | Tindastóll | 11 | +9 | 22 |
| 3 | KH | 11 | +16 | 21 |
| 4 | KV | 12 | -1 | 21 |
| 5 | Reynir S. | 11 | +7 | 20 |
| 6 | KF | 11 | +1 | 16 |
| 7 | Höttur | 11 | +1 | 14 |
| 8 | Augnablik | 11 | -1 | 14 |
| 9 | Ýmir | 11 | -4 | 12 |
| 10 | KÁ | 12 | -14 | 10 |
| 11 | Sindri | 11 | -14 | 8 |
| 12 | Árbær | 11 | -14 | 5 |