„Veit ekki hvort að fólk sem horfði átti sig á því hversu góðir fótboltamenn eru í þessu liði"


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Lengjudeildarlið Vestra spilaði fyrsta Evrópuleik í sögu félagsins á fimmtudaginn síðasta gegn Qarabag frá Aserbaídsjan. Leikurinn fór fram á Tofiq Bahramov Republican vellinum í Bakú og Qarabag fór með 3-0 sigur af hólmi.
Elmar Atli Garðarsson fyrirliði Vestra spilaði allan leikinn og Fótbolti.net ræddi við hann um leikinn.
Hvernig var að spila Evrópuleik með uppeldisfélaginu, gegn svona sterkum andstæðingi í Qarabag?
„Þetta var mjög sérstök upplifun. Mikið af hugsunum sem fóru í gegnum hausinn á manni dagana fyrir þennan leik. Þetta er eitthvað sem ég hefði aldrei getað ímyndað mér að fara í gegnum með Vestra. Ég reyndi bara að njóta augnabliksins eins og ég gat. Fyrst og fremst mikill heiður að fá að leiða sitt lið út á völl í svona leik, er og verð alltaf mjög stoltur af þessu".
Hvernig var tilfinningin að labba inn á völlinn og heyra Evrópudeildar lagið með 20 þúsund manns að horfa?
„Þetta móment er eitthvað sem ég á aldrei eftir að gleyma, lætin á vellinum voru rosaleg. Algjör sturlun. Maður er bara þakklátur fyrir að fá að upplifa þetta með sínu liði. Það er alls ekki sjálfsagt. Held að það séu fullt af strákum hérna heima á Íslandi sem að dreymir um að fá að prufa þetta".
Hvernig var að spila leikinn?
„Við vorum alveg undirbúnir og meðvitaðir um að það gæti verið smá skjálfti í okkur fyrstu mínúturnar. Um leið og leikurinn var flautaður á, þá voru menn í fullum fókus. Mér fannst við ná að halda góðri einbeitingu nánast allan leikinn. Þrátt fyrir það refsar svona lið manni um leið og við slökkvum á okkur sem sést í mörkunum sem þeir skora. "
„Veit ekki hvort að fólk sem horfði á þennan leik átti sig á því hversu góðir fótboltamenn eru í þessu Qarabag liði, efast um að maður spili við svona gæðamikla leikmenn aftur.
Hvernig fannst þér frammistaða liðsins og er 3-0 ásættanlegt? Betra eða verra en þið voruð að búast við?
„Ég held að allir höfðu fyrir fram spáð okkur stærra tapi. Það fer enginn inn á fótboltavöll án þess að ætla sér sigur og við erum engin undantekning þar, þrátt fyrir stærð andstæðingsins. Við ætluðum að mæta þangað og reyna að vinna þennan leik en við vorum meðvitaðir um það að við þyrftum að eiga okkar allra besta dag til að ná því. Út frá úrslitunum var frammistaðan kannski ekki sú besta en ég held að heilt yfir getum við verið nokkuð sáttir með margt í þessum leik. Við vissum að þetta var alltaf að fara að vera mjög erfiður leikur. Það voru fullt af flottum köflum hjá okkur í þessum leik sem mér fannst við ekki ná að nýta okkur nægilega vel. Við vörðumst mjög vel á köflum en náðum ekki að skapa okkur mikið fram á við. Einbeitingin var heilt yfir góð og við gáfumst aldrei upp".
Hvernig leggst seinni leikurinn í þig og hvað ætlið þið að gera í leiknum til að ná í möguleg úrslit?
„Þetta leggst bara vel í okkur. Við erum svo sem ekkert búnir að ákveða uppleggið í þeim leik alveg strax þar sem að við eigum leik í deildinni núna á mánudaginn. Ég geri ráð fyrir því að við leggjumst yfir það strax á þriðjudaginn. En það er alveg augljóst að við verðum að reyna að sækja aðeins meira og vera aðeins svalari á boltann til þess að eiga möguleika í þessu einvígi".
Seinni leikur liðana fer fram fimmtudaginn 16. júlí á Avis-vellinum í Laugardal klukkan 20:00.





