Fotbolti.net
11.07.26 - 10:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Sterkasta lið 10. umferðar - Eitt það óvæntasta í sumar

Fram vann stórkostlegan sigur.

Fram vann stórkostlegan sigur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í gær kláraðist tíunda umferð Bestu deildar kvenna en um var að ræða mjög athyglisverða umferð.

Fram, botnlið deildarinnar, gerði sér lítið fyrir og tók sigur gegn toppliðinu, Breiðabliki. Einhver óvæntustu úrslit fótboltasumarsins til þessa. Anton Ingi Rúnarsson er auðvitað þjálfari umferðarinnar og þá komast Ashley Brown Orkus, Taylor Marie Hamlett og Harpa Helgadóttir í lið umferðarinnar.
Sterkasta lið 9. umferðar - Skákaði læriföðurnum
TENGT EFNI

Sterkasta lið 9. umferðar - Skákaði læriföðurnum



Ída Marín Hermannsdóttir sýndi bestu frammistöðu sumarsins til þessa þegar hún skoraði fimm mörk í mögnuðum 7-3 sigri FH gegn Þrótti. Systir hennar, Thelma Lóa, átti eining frábæran leik en þetta er í annað sinn í sumar þar sem þær systur eru saman í liði umferðarinnar.

Þór/KA er að komast í gang en þær unnu 1-0 sigur á Grindavík/Njarðvík. Arna Sif Ásgrímsdóttir var sem klettur í vörninni og Hildur Anna Birgisdóttir lék vel á miðsvæðinu.

Þá spiluðu hinar bandarísku Allison Grace Lowrey og Avery Mae Vanderven mjög vel í sigri ÍBV á Víkingi sem er í vandræðum.

Valur og Stjarnan gerðu jafntefli í síðasta leik umferðarinnar þar sem Margrét Brynja Kristinsdóttir og Þóra María Hjaltadóttir voru bestu leikmenn vallarins.
Ída Marín hefur verið mögnuð í sumar.

Ída Marín hefur verið mögnuð í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arna Sif lék mjög vel í vörn Þórs/KA.

Arna Sif lék mjög vel í vörn Þórs/KA.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Allison Grace Lowrey.

Allison Grace Lowrey.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.