21.07.05 - 06:14
Diego Placente til Celta Vigo (Staðfest)




Argentínski varnarmaðurinn Diego Placente hefur skrifað undir þriggja ára samning við Celta Vigo á Spáni. Celta komst upp í La Liga í vor og ætlar sér að festa sig all rækilega í sessi á næsta tímabili.
Placente er 28 ára gamall en hann fór frá Bayer Leverkusen eftir fimm ára veru þar. Hann hóf feril sinn hjá Argentinos Juniors árið 1995 áður en hann fór til River Plate tveimur árum síðar. Hann fór svo til Leverkusen árið 2001 og var í liðinu sem tapaði fyrir Real Madrid í úrslitaleik Meistaradeildarinnar árið 2002.
Celta féllu á þarsíðasta tímabili en komust strax aftur upp en þeir lentu í öðru sæti í annarri deildinni, aðeins á eftir Cadiz sem vann deildina.
Celta féllu á þarsíðasta tímabili en komust strax aftur upp en þeir lentu í öðru sæti í annarri deildinni, aðeins á eftir Cadiz sem vann deildina.
