Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mið 21. ágúst 2019 09:00
Magnús Már Einarsson
Hættir Klopp í þjálfun eftir samninginn hjá Liverpool?
Powerade
Klopp kemur við sögu í slúðurpakka dagsins.
Klopp kemur við sögu í slúðurpakka dagsins.
Mynd: Getty Images
Dortmund vill framlengja við Sancho.
Dortmund vill framlengja við Sancho.
Mynd: Getty Images
Félagaskiptaglugginn er ennþá opin utan Englands og slúðurpakki dagsins litast af því.



Borussia Dortmund hefur boðið Jadon Sancho nýjan samning upp á 190 þúsund pund í laun á viku. Manchester City og Manchester United hafa sýnt honum áhuga. (Mail)

Fenerbahce í Tyrklandi vill fá Marcos Rojo (29) varnarmann Manchester United á láni. (Manchester Evening News)

Juventus hefur áhuga á að fá Luis Suarez (32) framherja Barcelona ef Neymar kemur til Börsunga frá PSG. (Tuttosport)

Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, segir að hann gæti hætt að þjálfa eftir að samningur hans hjá félaginu rennur út árið 2022. (Gianluca di Marzio)

Manchester City, Tottenham og Arsenal vilja fá Eduardo Camavinga (16) miðjumann Rennes en hann fór á kostum í sigri á PSG um helgina. (Mail)

Luka Jovic, framherji Real Madrid, gæti verið á leið til AC Milan á láni, tveimur mánuðum eftir að hann kom til Real. (Gazzetta)

Arsenal er að íhuga að bjóða Matteo Guendouzi (20) nýjan fimm ára samning og tvöfalda þannig laun hans upp í 70 þúsund pund á viku. (Mail)

Mónakó hefur samþykkt að fá Mario Lemina (25) á láni frá Southamton. (RMC)

Besiktas hefur samið við Tottenham um að fá kantmanninn Georges-Kevin N'Koudou (24) á láni. (TRT Sport)

Club Brugge vill fá Victor Wanyama (28) miðjumann Tottenham. (Express)

Juventus er tilbúið að láta Emre Can (25) fara til Barcelona sem hluta af kaupverði fyrir Ivan Rakitic (31). (Tuttosport)

Hugo Lloris (32) markvörður Tottenham vill að liðið sýni meiri stöðugleika á þessu tímabili. (Standard)

Everton ætlar að leika æfingaleik fyrir luktum dyrum til að hjálpa nýjum leikmönnum liðsisn að komast í betri leikæfingu. (LIverpool Echo)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner