Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   mið 21. ágúst 2019 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Tore Andre Flo telur upp vonarstjörnur Chelsea
Tore Andre Flo á landsliðsæfingu hjá U21 liði Noregs.
Tore Andre Flo á landsliðsæfingu hjá U21 liði Noregs.
Mynd: Getty Images
Norðmaðurinn Tore Andre Flo gerði garðinn frægan sem leikmaður Chelsea frá 1997 til 2000.

Í dag starfar hann með ungum leikmönnum Chelsea sem eru sendir út á lán. Félagið er með gríðarlegt magn ungra leikmanna á samning hjá sér og fer stór hluti þeirra út á lán á hverju tímabili.

Chelsea má ekki kaupa leikmenn fyrr en næsta sumar útaf félagaskiptabanni. Flo telur það ekki saka enda séu margir öflugir leikmenn komnir til baka úr láni.

„Við vorum sem betur tilbúnir í þetta félagaskiptabann. Við erum með gott kerfi innan félagsins og margir góðir leikmenn eru komnir aftur eftir að hafa verið úti að láni,"

„Tammy Abraham, Reece James, Mason Mount, Fikayo Tomori og Kurt Zouma gerðu allir vel."

Flo nefndi ekki Michy Batshuayi, sem gerði vel hjá Crystal Palace, Kenedy sem spilaði fyrir Newcastle eða Tiemoue Bakayoko sem var hjá AC Milan.

„Þetta er eins og að kaupa nokkra nýja leikmenn. Ég er sérstaklega spenntur fyrir Tammy, hann gerði 26 mörk á síðustu leiktíð."
Athugasemdir
banner
banner
banner