Fotbolti.net
21.09.13 - 17:04
Elvar Geir Magnússon

Aron Sigurðarson: Hentum þremur í grillið á þeim

Auglýsing
Aron Sigurðarson: Hentum þremur í grillið á þeim
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fjölnismenn unnu 1. deildina og eru komnir upp í Pepsi-deildina eftir magnaðan 3-1 útisigur gegn Leikni í lokaumferð. Marki undir fengu Fjölnismenn rauða spjaldið en tvíefldust og skoruðu þrjú mörk tíu gegn ellefu!
Aron Sigurðarson átti frábært tímabil með Fjölni og verður spennandi að fylgjast með þessum efnilega leikmanni í Pepsi-deildinni næsta sumar.

„Þetta er æðisleg tilfinning. Hér erum við með bikar á lofti,\" sagði Aron.

„Þetta leit ekki vel út en við héldum í trúna og vissum að ef við myndum halda skipulagi þá myndum við setja mörk. Það gerðum við og hentum þremur í grillið á þeim.\"

Aron byrjaði á bekknum en um leið og hann kom inn fóru mörkin að koma. Viðtalið má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.