Bayern á eftir ungstirni Bournemouth - Konate eftirsóttur
Maggi er ósáttur með mark Fylkis: Boltinn var aldrei inni
Heimir: Þurfum að setjast niður og læra af þessu
Sölvi Geir: Það fór smá um mann
Seinn á fund í gær en skoraði þrennu í kvöld: Fokking mikil sekt
Hemmi: Helvíti ódýr mörk og einstaklingsmistök
Siggi Höskulds: Leikmenn Stjörnunnar vilja greinilega hafa Jökul í starfi
Halli: Þurfum að hugsa okkar gang
Gunnar Heiðar: Ég vissi ekki að við ætluðum allt í einu að setja inn gjafaleik FM
Jökull vísaði í leikplan Arsenal þegar hann hrósaði Þór
Brynjar Björn um rauða spjaldið: Þetta er nú eina trixið sem ég kann
Lagði upp fjögur mörk í Eyjum - „Þetta var upp á líf og dauða fyrir okkur“
Luke Rae: Mér fannst aldrei líklegt að þeir myndu koma til baka
Skoraði draumamark en þarf að hætta tuða - „Kontra hann svo í Samúel”
Hilmar Árni: Það þarf oft lítið til að meiða okkur
Linta: Ég vil óska strákunum til hamingju
„Mér fannst þeir orðnir hræddir"
Jóhann: Grafalvarlegt fyrir okkur
Badu: Hef aldrei efast um karakterinn
Óskar Smári eftir sigurinn: „Ætli ég fari ekki bara til Tenerife í tvær vikur“
Jón Óli: Bjartsýnn á Allison og feginn með frábæra byrjun
banner
   lau 21. september 2019 16:54
Daníel Smári Magnússon
Ármann Pétur: Pínu eins og fyrsti leikurinn aftur
Ármann Pétur spilaði sinn síðasta leik fyrir Þór í dag.
Ármann Pétur spilaði sinn síðasta leik fyrir Þór í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
„Þetta er pínu skrítið. Ég var búinn að bíða eftir þessum leik og þetta var pínu eins og fyrsti leikurinn aftur! Ég var með smá fiðring í maganum og morguninn var lengi að líða. En mér finnst þetta vera rétt ákvörðun og mér líður vel með hana,'' sagði Ármann Pétur Ævarsson eftir sinn síðasta meistaraflokksleik. Hann spilaði 96 mínútur í 0-0 jafntefli gegn Magna í Inkasso deild karla í dag.

Lestu um leikinn: Þór 0 -  0 Magni

„Það er kannski partur af þessu, hann er kannski ekki frábær,'' sagði Ármann þegar hann var spurður útí ástandið á sér eftir leikinn. Hann hélt áfram: „Hann hefur kannski ekki verið það í sumar og maður vill geta leikið sér í framtíðinni, þannig að maður sé ekki alveg handónýtur eftir ferilinn!''

Spurður út í hápunktana á ferlinum sagði Ármann: „Það er rosalega margt. Evrópukeppnin. Bikarúrslitin, ömurlegt að tapa því en stemningin var alveg ólýsanleg sem við fengum frá okkar fólki. Svo er það bara að fara uppí Pepsi deild og spila á móti þeim bestu á landinu. Og bara að reyna að rífa þetta á aðeins hærri standard.''

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Slapp