21.09.19 - 14:55
Ívan Guðjón Baldursson
Hólmfríður er að spila deildaleik númer 300

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hólmfríður Magnúsdóttir er í byrjunarliði Selfyssinga sem eru að spila við ÍBV í Pepsi Max-deild kvenna.
Liðin eru að mætast í Suðurlandsslag og er þessi leikur sérstaklega merkilegur fyrir Hólmfríði því þetta er hennar 300. leikur í deildakeppni. 145 leikjanna komu í efstu deild á Íslandi en hinir 155 með erlendum félagsliðum.
Hólmfríður var heiðruð fyrir leik en hún er önnur íslenska konan til að ná þessum áfanga. Katrín Jónsdóttir á 336 deildaleiki að baki.
Hólmfríður hefur alltaf verið iðin við markaskorun og er hún einmitt búin að skora í viðureign Selfoss og ÍBV. Það var hennar 120. mark í efstu deild á Íslandi en hún hefur einnig skorað 54 mörk í norska boltanum, fimm í sænska og fjögur í bandaríska.
Þá á Hólmfríður 112 landsleiki að baki og hefur skorað í þeim 37 mörk. Hún er fimmta leikjahæsta og næstmarkahæsta landsliðskona Íslands frá upphafi.

Heimild: MBL