Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 21. september 2020 11:18
Magnús Már Einarsson
Crystal Palace leggur fram tilboð í Brewster
Mynd: Getty Images
Crystal Palace hefur lagt fram 19 milljóna punda tilboð í Rhian Brewster sóknarmann Liverpool.

Að auki gætu sex milljónir bæst við kaupverðið í árangurstengdum greiðslum.

Crystal Palace er einnig til í að gefa Liverpool forkaupsrétt á Brewster og að ensku meistararnir geti keypt hann aftur á 37 milljónir punda.

Hinn tvítugi Brewster hefur einnig verið orðaður við Sheffield United, Newcastle og Brighton.

Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, hefur ekki viljað gefa út neinar yfirlýsingar um framtíð Brewster en eftir kaupin á Thiago Alcantara og Diogo Jota gæti hann selt leikmanninn til að fá pening í kassann.
Athugasemdir
banner
banner
banner