Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 21. september 2020 11:30
Magnús Már Einarsson
Spartak Moskva reynir að kaupa Aurier
Mynd: Getty Images
Rússneska félagið Spartak Moskva er að reyna að fá hægri bakvörðinn Serge Aurier í sínar raðir frá Tottenham.

Aurier er ekki inni í myndinni hjá Jose Mourinho fyrir komandi tímabil hjá Tottenham.

AC Milan sýndi Aurier áhuga í sumar en samningar náðust ekki á milli félaga þar.

Hinn 27 ára gamli Aurier vill sjálfur róa á önnur mið til að fá að spila meira og hann gæti samið við Spartak Moskvu á næstu dögum.
Athugasemdir
banner
banner
banner