Oli McBurnie, framherij Sheffield United, var handtekinn snemma á föstudagsmorgun eftir að hann var gripinn við ölvunarakstur.
McBurnie þarf að mæta fyrir rétt þann 6. nóvember þar sem refsing hans verður ákveðinn.
Hinn 23 ára McBurnie varð dýrasti leikmaðurinn í sögu Sheffield United þegar félagið keypti hann frá Swansea á 17 milljónir punda í sumar.

Sheffield United fær Arsenal í heimsókn í ensku úrvalsdeildinni í kvöld en McBurnie átti að snúa aftur í leikmannahópinn þar eftir hnémeiðsli.
Spurning er hvort McBurnie verði refsað af Sheffield United og haldið utan hóps í kvöld.
Athugasemdir