Klukkan 16:45 hefjast tveir leikir hjá Íslendingaliðum í Sambandsdeildinni og einn í Evrópudeildinni.
Það eru fjórir Íslendingar sem byrja þessa leiki og einn er á bekknum. Alfons Sampsted er á sínum stað í byrjunarliði Bodö/Glimt sem fær Roma í heimsókn.
Það eru fjórir Íslendingar sem byrja þessa leiki og einn er á bekknum. Alfons Sampsted er á sínum stað í byrjunarliði Bodö/Glimt sem fær Roma í heimsókn.
Þeir Ísak Bergmann Jóhannesson og Andri Fannar Baldursson eru báðir í byrjunarliði FC Kaupmannahafnar sem mætir PAOK. Hákon Arnar Haraldsson er á bekknum hjá FCK. Sverrir Ingi er ekki með PAOK vegna hnémeiðsla.
Þá er Elías Rafn Ólafsson í markinu hjá FC Midtjylland sem tekur á móti Rauðu Stjörnunni í Evrópudeildinni. Jonas Lössl er á bekknum.
FCK og Midtjylland eru á Stöð 2 Sport og Bodö/Glimt gegn Roma er á ViaPlay.
Klukkan 19:00 hefst svo leikur CFR Cluj gegn AZ Alkmaar. Þar gætu þeir Albert Guðmundsson og Rúnar Már Sigurjónsson komið við sögu.
Athugasemdir