Fotbolti.net
21.10.26 - 13:48
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Óttast að Sesko verði lengi frá

Óttast að Sesko verði lengi frá
Canon

Mynd: EPA

Manchester United óttast að framherjinn Benjamin Sesko verði frá næstu mánuðina vegna meiðsla sem hafa haldið honum frá vellinum síðustu vikunnar.

Samuel Luckhurst, sem fjallar um United fyrir the Sun, segir að United íhugi að kaupa framherja í janúar.
United óttast að Sesko verði ekkert meira með á þessu ári en hann varð fyrir bakslagi þegar hann var að vinna sig til baka úr meiðslum sínum.

Sesko hefur verið frá í fimm vikur og er óttast að hann verði frá í allt að fjóra mánuði. Hann gæti misst af restinni af árinu og jafnvel hluta af fyrsta mánuði næsta árs.

United reyndi ekki að fá inn framherja í glugganum þar sem félagið gat ekki losað Joshua Zirkzee. Matheus Cunha og Bryan Mbeumo hafa spilað sem fremstu menn í fjarveru Sesko.

Sesko, sem er 23 ára, skoraði tólf mörk fyrir United á síðasta tímabili.

United spilar seinna í Como í dag í 3. umferð deildarkeppninnar í Meistaradeildinni. Sá leikur hefst klukkan 16:45 að íslenskum tíma.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.