Jose Mourinho, nýráðinn stjóri Tottenham, lét ýmislegt flakka á fréttamannafundi í dag. Mourinho var meðal annars spurður að því hvort að hann sé „herra Chelsea."
Mourinho hefur tvívegis á ferlinum stýrt Chelsea en hann hefur nú tekið við öðru félagi í London.
Mourinho hefur tvívegis á ferlinum stýrt Chelsea en hann hefur nú tekið við öðru félagi í London.
„Ég held að ég sé herra Porto, herra Inter og herra Real Madrid og annað hjá öðrum félögum líka," sagði Mourinho á fréttamannafundinum í dag.
„Ég er hjá því félagi sem ég er. Ég klæðist náttfötum félagsins og sef í þeim. Ég vinn og svef. Þú ferð að ruglast á æfingagallanum og náttfötunum."
„Ég er félagsmaður, en ég er félagsmaður hjá mörgum félögum."
Athugasemdir