Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 21. nóvember 2021 09:00
Brynjar Ingi Erluson
Tileinkaði Astori markið með sérstöku fagni
Saponara bauð upp á Salute-fagnið
Saponara bauð upp á Salute-fagnið
Mynd: EPA
Riccardo Saponara, miðjumaður Fiorentina á Ítalíu, skoraði annað mark Fiorentina í 4-3 sigrinum á Milan í ítölsku deildinni í gær en hann tileinkaði Davide Astori markið.

Astori lést í mars árið 2018 en hann fannst látinn á hótelherbergi sínu fyrir leik Fiorentina gegn Udinese. Þessi fyrrum landsliðsmaður Ítalíu varð bráðkvaddur.

Saponara og Astori voru afar nánir og ákvað hann því að tileinka Astori markið með að taka Salute-fagnið, sem er sérstaklega tileinkað honum.

Hægt er að sjá markið og fagnið hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner