Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 21. nóvember 2021 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Zlatan náði merkum áfanga gegn Fiorentina
Zlatan Ibrahimovic
Zlatan Ibrahimovic
Mynd: EPA
Sænski framherjinn Zlatan Ibrahimovic er elsti leikmaðurinn til að skora tvö mörk eða fleiri í Seríu A á Ítalíu. Hann gerði tvö mörk fyrir Milan í 4-3 tapinu gegn Fiorentina í gær.

Zlatan, sem varð fertugur í október, gerði fyrstu tvö mörk Milan í leiknum og minnkaði muninn niður í 3-2.

Dusan Vlahovic gerði fjórða mark Fiorentina. Zlatan átti stóran þátt í þriðja marki Milan undir lok leiks en hann skallaði í slá og þaðan fór boltinn í Lorenzo Venuti og í netið.

Zlatan er elsti leikmaðurinn til að skora tvö mörk eða fleiri í sama leiknum í Seríu A og er þá fyrsti leikmaðurinn á þessari öld til að gera tvö mörk í stærstu fimm deildunum.

Hann er með fimm mörk og þrjár stoðsendingar fyrir Milan í aðeins sjö leikjum en liðið er í 2. sæti deildarinnar með 32 stig, jafnmörg og Napoli sem er með betri markatölu.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner