Fotbolti.net
21.11.22 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Íris Ósk semur við Fylki

Íris Ósk semur við Fylki
Canon

Mynd: Fylkir

Hertz

Íris Ósk Valmundsdóttir er búin að skrifa undir tveggja ára samning við Fylki sem gildir út árið 2024.

Íris Ósk er 31 árs og gekk í raðir Fylkis síðasta sumar en spilaði aðeins einn leik. Íris er gríðarlega reynslumikill varnarmaður sem á 240 leiki í deild og bikar fyrir Fjölni, Stjörnuna og KR.

Hún hefur skorað 34 mörk í þessum 240 leikjum og lék síðast með Fjölni í næstefstu deild fyrir rúmum þremur árum.

„Við Fylkismenn getum glaðst yfir þeim tíðindum að semja við jafn reyndan leikmann sem er staðráðin að koma félaginu aftur deild þeirra bestu!" segir meðal annars í færslu frá Fylki.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.