16.11.26 - 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Courtois: Þurftum stóran persónuleika eins og Mourinho

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Belgíski markvörðurinn Thibaut Courtois er af mörgum talinn einn af þeim allra bestu í heimi. Hann er 34 ára gamall og leikur fyrir Real Madrid.

TENGT EFNI
Mourinho útskýrði taktíkina gegn Barca: Eina lausnin
Hann er gríðarlega ánægður með José Mourinho sem tók við þjálfun aðalliðsins síðasta sumar og hafa Madrídingar unnið alla leiki sína nema tvo á nýju tímabili.
„José Mourinho fyllir herbergið, maður finnur fyrir nærverunni hans um leið og hann labbar inn í klefann. Við þurftum stóran persónuleika eins og hann," segir Courtois, sem gefur ekki kost á sér með Belgíu í Þjóðadeildinni þetta tímabilið.
Courtois lék undir stjórn Mourinho hjá Chelsea frá 2013 til 2015 og segir að hann hafi aðeins róast niður með aldrinum.
„José er ennþá sami maðurinn sem sama persónuleikann og þegar við störfuðum saman fyrir 12 árum. Með aldrinum og reynslunni hefur hann aðeins róast niður, hann var aðeins harðari og ákafari í búningsklefanum þegar við störfuðum saman hjá Chelsea. Hann er ennþá með sama hugarfar, mikinn sigurvilja og skýrar hugmyndir um hvernig hann vill spila fótbolta."
Mourinho tók við þjálfarastarfinu af Álvaro Arbeloa sem hafði verið ráðinn til bráðabirgða út tímabilið og starfar í dag sem stjóri Fulham. Arbeloa tók við starfinu af Xabi Alonso, sem var aðalþjálfari Real Madrid í rúma sjö mánuði en virtist ekki hafa næga stjórn á klefanum. Það er mikið af stórum persónuleikum í klefanum hjá Real sem er ekki auðvelt að hafa hemil á.
„Mér líkaði mjög vel við Xabi en stundum þá tekst mönnum ekki að tengja við alla leikmenn í hópnum, þannig getur fótboltinn verið. Mér líkar við hugmyndir hans og ég er viss um að hann mun ná árangri með Chelsea ef þeir gefa honum tíma."

La Liga - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Barcelona | 12 | +35 | 33 |
| 2 | Real Madrid | 12 | +21 | 30 |
| 3 | Atletico Madrid | 12 | +13 | 28 |
| 4 | Betis | 12 | +5 | 26 |
| 5 | Real Sociedad | 12 | +1 | 22 |
| 6 | Sevilla | 12 | -2 | 18 |
| 7 | Athletic | 11 | +4 | 16 |
| 8 | Villarreal | 12 | +2 | 15 |
| 9 | Deportivo | 12 | +1 | 15 |
| 10 | Racing Santander | 12 | -13 | 14 |
| 11 | Celta | 12 | 0 | 13 |
| 12 | Alaves | 12 | -2 | 13 |
| 13 | Espanyol | 12 | -1 | 12 |
| 14 | Vallecano | 11 | -6 | 12 |
| 15 | Getafe | 12 | -10 | 12 |
| 16 | Osasuna | 12 | -11 | 12 |
| 17 | Levante | 12 | -5 | 11 |
| 18 | Elche | 12 | -6 | 10 |
| 19 | Valencia | 12 | -12 | 9 |
| 20 | Malaga | 12 | -14 | 5 |