Fotbolti.net
21.11.26 - 12:50
Brynjar Ingi Erluson

Arteta: Pochettino alltaf verið fyrirmyndin mín

Mikel Arteta er ánægður með að sjá góðvin sinn snúa aftur í úrvalsdeildina

Mikel Arteta er ánægður með að sjá góðvin sinn snúa aftur í úrvalsdeildina

Canon

Mynd: EPA

Mikel Arteta, stjóri Englandsmeistara Arsenal, er hæstánægður með að sjá Mauricio Pochettino snúa aftur í ensku úrvalsdeildina.
Pochettino tók við Manchester United á dögunum, en þetta er fjórða félagið sem hann stýrir í ensku úrvalsdeildinni.

Hann hóf feril sinn á Englandi hjá Southampton áður en hann gerði frábæra hluti með Tottenham. Þaðan lá leiðin til Paris Saint-Germain og síðar aftur til Englands þar sem hann tók við Chelsea, en dvölin þar varð ekki löng áður en hann var látinn taka pokann sinn.

Í sumar stýrði Pochettino bandaríska landsliðinu á HM þar sem liðið náði góðum árangri, en nú er hann kominn aftur á kunnuglegar slóðir í ensku úrvalsdeildinni.

Arteta er ánægður með endurkomu Argentínumannsins, en þeir léku saman hjá Paris Saint-Germain á sínum tíma og hafa verið miklir vinir síðan.

„Hann hefur alltaf verið fyrirmyndin mín og ég hef lært ótrúlega mikið af honum. Hann hefur gegnt mjög mikilvægu hlutverki á mínum ferli og ég er honum afar þakklátur, sérstaklega fyrir þá væntumþykju sem hann sýndi mér snemma á ferlinum. Það hjálpaði mér gríðarlega mikið.“

„Fótbolti er ótrúleg íþrótt. Við vorum saman hjá Paris Saint-Germain og nú erum við þjálfarar í sömu deild. Ég held að þetta sé í þriðja sinn sem ég mæti honum, bæði sem leikmaður og þjálfari, og ég hef nú þegar mætt honum í ensku úrvalsdeildinni með þrjú mismunandi félög. Þetta er alveg mögnuð tenging,“
sagði Arteta um góðvin sinn.

Þeir mætast á ný þann 20. desember þegar Man Utd tekur á móti Arsenal á Old Trafford, en liðin eigast svo aftur við á Emirates í febrúar.
Mauricio Pochettino

Mauricio Pochettino

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.