Fotbolti.net
20.11.26 - 23:37
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Mudryk: Shevchenko lýgur

Mudryk: Shevchenko lýgur
Canon

Mynd: EPA

Það er gríðarlega mikil dramatík búin að myndast eftir að Mykhailo Mudryk fór í viðtal á úkraínskri Youtube-rás á dögunum.

Mudryk talaði m.a. um bannið sem hann var dæmdur í eftir að hafa fallið á lyfjaprófi. Hann fékk upphaflega 4 ára keppnisbann en því var aflétt eftir um eitt og hálft ár.
Shevchenko vill að Mudryk dragi ummælin til baka
TENGT EFNI

Shevchenko vill að Mudryk dragi ummælin til baka

Hann kenndi úkraínska fótboltasambandinu um að læknar hafi gefið sér ólögleg lyf án hans vitundar. Andriy Shevchenko, forseti úkraínska fótboltasambandsins, svaraði þeim ummælum og sagði að Mudryk og talsmenn hans hafi reynt að henda starfsmönnum sambandsins undir rútuna og fá þá til að ljúga.

Mudryk hefur nú svarað því og sakar Shevchenko um lygar.

„Ég og mitt fólk reyndum ítrekað að fá hjálp frá sambandinu til að átta okkur á því hvernig ég fékk melodonium og hver ber ábyrgð," segir Mudryk.

Hann segir að sambandið hafi reynt allt til að komast hjá því að takast á við vandamálið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.