21.11.26 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Araujo opnar sig um baráttu við þunglyndi

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Ronald Araujo, lánsmaður hjá Liverpool frá Barcelona, er að spila virkilega vel með enska liðinu um þessar mundir.
Hann var hins vegar á mjög vondum stað fyrir um ári síðan en hann opnaði sig um baráttu við þunglyndi í viðtali hjá The Athletic.

Hann tók sér pásu frá fótboltla eftir að hafa fengið rautt spjald gegn Chelsea í Meistaradeildinni þann 25. nóvember í fyrra. Hann hafði átt mjög erfitt í rúmt ár fram að þeim leik en hann varð fyrir ógeðfeldu ofbeldi á samfélagsmiðlum, hann fékk m.a. líflátshótanir.
„Nú þegar ár er liðið get ég staðfest að það var ein besta ákvörðun lífs míns þegar ég ákvað að taka mér pásu því það var það sem ég þurfti."
„Að viðurkenna að eitthvað var að gerast hjá mér, að mér liði ekki vel. Hvað hjálpaði mér í gegnum þetta? Svo margt. Stuðningur vina minna, fjölskyldu minnar, kristin trú mín og að leita sér hjálpar frá fagfólki. Þetta hefur verið lykilatriðin í því að hjálpa mér að líða vel aftur og sjá lífið í öðru ljósi. Kannski snýst þetta ekki svo mikið um vinnu eða fótbolta heldur að viðurkenna að það er manneskja handan fótboltans."
„Ég hef lært að hugsa betur um sjálfan mig. Það hefur verið margt sem ég hef breyst. Ég hef líka lært að setja hlutina miklu meira í samhengi. Núna nýt ég þess að gera það sem ég elska mest og ég nýt þess að vera með fjölskyldunni og lifa hamingjusömu lífi. Án efa endurspeglast margt af því sem gerist utan vallar á vellinum.“