21.11.26 - 11:30
Brynjar Ingi Erluson
Staðfestir viðræður við Bruno - „Vil ekki fara nánar út í það“

Bruno Fernandes hefur hafnað tveimur samningstilboðum frá Man Utd

Mynd: EPA

Omar Berrada, framkvæmdastjóri Manchester United, staðfestir að félagið sé í viðræðum við portúgalska miðjumanninn og fyrirliðann Bruno Fernandes um nýjan samning.

TENGT EFNI
Berrada tjáir sig um gagnrýnina, Carrick og JJ Gabriel
United hefur þegar lagt fram tvö samningstilboð sem Fernandes hefur bæði hafnað, en þrátt fyrir það eru stjórnarmenn félagsins enn sannfærðir um að hægt sé að halda honum.
Talið er að Fernandes gæti yfirgefið United næsta sumar, en Berrada segir viðræður enn standa yfir þótt hann vilji ekki gefa mikið upp um stöðu mála.
„Við berum ómælda virðingu fyrir Bruno og erum heppnir að hafa hann sem fyrirliða. Það sem hann hefur gert fyrir þetta lið er ótrúlegt.“
„Það er satt að við erum í viðræðum varðandi nýjan samning, en ég vil ekki fara nánar út í það,“ sagði Berrada.
Samningur Bruno rennur út eftir tímabilið, en United getur framlengt hann um eitt ár til viðbótar með ákvæði í núverandi samningi og þannig komið í veg fyrir að missa hann án frítt eftir tímabilið.