21.11.26 - 12:17
Brynjar Ingi Erluson
Kane fór í aðgerð - „Kem ferskur og klár til baka fyrir lokasprett tímabilsins“

Mynd: Harry Kane

Mynd: Harry Kane
Ballon d'Or-hafinn Harry Kane er gríðarlega vonsvikinn með að verða frá keppni næstu mánuðina eftir að hafa slitið liðband í ökkla í leik Bayern München gegn Köln í gær, en segist ekki geta beðið eftir að snúa aftur á völlinn.

TENGT EFNI
Betri fréttir af Olise en Kane
Kane meiddist í fyrri hálfleik gegn Köln og þurfti að fara af velli, en Bayern staðfesti síðar að hann yrði frá keppni í nokkra mánuði.
Hann verður því ekki meira með á þessu ári, en stefnt er að því að hann snúi aftur fyrir lokasprett tímabilsins.
„Hæðir og lægðir lífsins! Auðvitað eru það mikil vonbrigði að meiðast á þennan hátt, en svona mótlæti gefur manni líka tækifæri til að sýna þrautseigju og koma sterkari til baka árið 2027.“
„Ég kem ferskur og klár til baka fyrir lokasprett tímabilsins,“ sagði Kane eftir að hafa gengist undir aðgerð.
Framherjinn hafði verið í frábæru formi áður en hann meiddist, en hann hafði skorað tíu mörk og lagt upp önnur tíu fyrir Bayern á tímabilinu.