21.11.26 - 12:54
Brynjar Ingi Erluson
Styttist í endurkomu Ekitike - „Það hefur alltaf verið planið“

Hugo Ekitike

Mynd: EPA

Giovanni Leoni er byrjaður að æfa aftur

Mynd: EPA

Hugo Ekitike

Mynd: EPA
Franski sóknarmaðurinn Hugo Ekitike er farinn að nálgast endurkomu eftir að hafa verið frá vegna meiðsla síðan í apríl, en Andoni Iraola, stjóri Liverpool, staðfesti þetta í viðtali á heimasíðu félagsins.
Ekitike sleit hásin í apríl, en fram að því hafði hann verið að gera flotta hluti á sínu fyrsta tímabili með Liverpool.
Hann hefur unnið hörðum höndum að því að komast aftur á völlinn og nú er loksins farið að styttast í endurkomuna.
„Planið hefur alltaf verið að hann snúi aftur í janúar og það hefur ekkert breyst. Ef allt gengur sérstaklega vel gæti hann auðvitað komið fyrr til baka, sem væri frábært fyrir alla. En eins og staðan er núna stefnum við á janúar. Það er planið,“ sagði Iraola um Ekitike.
Stuðningsmenn Liverpool fengu einnig góðar fréttir af varnarmönnunum Giovanni Leoni og Conor Bradley, sem eru báðir byrjaðir að æfa aftur eftir hnémeiðsli. Þeir þurfa þó enn að bíða eftir því að spila með aðalliðinu.
„Núna snýst þetta um að koma þeim í gegnum næstu skref. Þeir munu æfa næstu tvær vikurnar, bæði með hópnum og á eigin vegum. Síðan þurfum við að ákveða hvort við spilum æfingaleik fyrir luktum dyrum eða hvort þeir fari beint að spila með U21 árs liðinu.“
„Það er líka mjög góður kostur, en þeir þurfa að taka þetta skref áður en þeir geta farið að spila með okkur,“ sagði spænski stjórinn í lokin.