Fotbolti.net
21.11.26 - 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Fyrrum vonarstjarna West Ham í ensku C-deildina

Fyrrum vonarstjarna West Ham í ensku C-deildina
Canon

Mynd: EPA

Hinn 27 ára gamli Reece Oxford er genginn til liðs við Bromley sem er á botninum í ensku C-deildinni. Hann hefur æft með liðinu síðan á undirbúningstímabillinu.

Oxford hefur verið án félags síðan hann yfirgaf Augsburg í fyrra sumar.
Oxford gekk ungur að árum til West Ham frá Tottenham og varð yngsti leikmaður í sögu liðsins til að spila þegar hann var 16 ára og 198 daga gamall árið 2015.

Hann spilaði 17 leiki fyrir West Ham áður en hann gekk til liðs við Augsburg árið 2019 en hann spilaði 80 leiki í þýsku deildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.