21.11.26 - 10:05
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu neyðarlegt sjálfsmark Porto

Moura sendi boltann í eigið net

Mynd: EPA

Moura sendi boltann í eigið net

Mynd: EPA
Eitt neyðarlegasta sjálfsmark tímabilsins til þessa leit dagsins ljós í gær þegar Porto mætti Paredes í portúgalska bikarnum.
Porto, sem eru ríkjandi deildarmeistarar, tóku á móti Paredes sem leikur í C-deildinni.
Porto var með 1-0 forystu þegar rúmar 56 mínútur voru liðnar af leiknum, en þá átti sér stað afar furðulegt atvik.
Markvörður Porto varði skot en boltinn barst beint til Francisco Moura, varnarmanns liðsins, sem stóð fyrir framan eigið mark og tókst með ótrúlegum hætti að senda boltann í eigið net.
Það sem gerir sjálfsmarkið enn undarlegra er að Moura virtist hafa nægan tíma til að bregðast við, en engu að síður fór boltinn í netið. Atvikið var svo furðulegt að það gæti jafnvel vakið spurningar um hvort allt hafi verið með felldu en markið má sjá hér fyrir neðan.
Moura og félagar sluppu þó með skrekkinn því Porto hafði að lokum betur gegn Paredes eftir vítaspyrnukeppni og lifir bikarævintýrið enn góðu lífi.

Empata o USC Paredes numa infelicidade de Francisco Moura ????
— sport tv (@sporttvportugal) November 20, 2026
#sporttvportugal #TAÇAnaSPORTTV #TaçadePortugal #FCPorto #USCParedes https://t.co/KqQQkxEPDq