Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 22. janúar 2020 05:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Spánn í dag - Börsungar á Ibiza
Mynd: Getty Images
Konungsbikarinn á Spáni er í fullum gangi þessa vikuna. Í kvöld eru átta leikir, hvorki meira né minna.

Áhugaverðasta viðureign kvöldsins er á eyjunni skemmtilegu, Ibiza, þar sem stórveldið Barcelona er í heimsókn. Eyjan Ibiza er þekkt fyrir næturlíf, frekar en fótbolta, en fótboltafélagið þar leikur í C-deild. Mótherjinn í kvöld er topplið spænsku úrvalsdeildarinnar.

Leikur Ibiza hefst klukkan 18:00, eins og leikur Elche og Athletic Bilbao.

Hinir sex leikirnir eru klukkan 20:00. Þá verður Real Madrid meðal annars í eldlínunni gegn félagi sem ber heitið Unionstas de Salamanca og er í C-deild.

miðvikudagur 22. janúar

SPAIN: National cup
18:00 Elche - Athletic
18:00 UD Ibiza - Barcelona
20:00 Unionstas de Salamanca - Real Madrid
20:00 UD Logrones - Valencia
20:00 Tenerife - Valladolid
20:00 Badalona - Granada CF
20:00 Girona - Villarreal
20:00 Real Sociedad - Espanyol
Athugasemdir
banner
banner