Wolves spilar við Chorley í enska bikarnum í kvöld en um er að ræða leik í 16-liða úrslitum keppninnar.
Chorley sló Leeds úr leik mjög óvænt í síðustu umferð en úrvalsdeildarfélagið tapaði þar 3-0.
Wolves er þó komið yfir á útivelli í kvöld en ungstirnið Vitinha skoraði eftir aðeins 12 mínútur.
Vitinha stimplaði sig rækilega inn með þessu marki en hann átti stórkostlegt langskot sem hafnaði í netinu.
Vitinha er fæddur árið 2000 en hann kom til Wolves frá Porto í sumar og hefur spilað 10 deildarleiki.
Mark hans má sjá hér.
Chorley 0-1 Wolves - Vitinha great goalpic.twitter.com/zPCLBQJtWM
— noobfcb (@noob_fcb) January 22, 2021
Athugasemdir