Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 22. febrúar 2021 10:30
Magnús Már Einarsson
Leikmenn Aston Villa tóku Grealish úr Fantasy liðinu sínu
Mynd: Getty Images
Dean Smith, stjóri Aston Villa, var ekki ánægður með að fréttir um meiðsli Jack Grealish hafi lekið á samfélagsmiðla fyrir leik liðsins gegn Leicester í gær.

Grealish var fjarri góðu gamni í gær en fréttir af meiðslum hans láku út á laugardaginn.

The Athletic bendir á það í dag að stuðningsmenn Aston Villa hafi komist að fréttunum með því að skoða Fantasy lið hjá leikmönnum liðsins.

Matt Targett, Conor Hourihane og Neil Taylor tóku allir Grealish úr Fantasy liði sínu um helgina sem og Scott Adey-Linforth í þjálfarateyminu og sjúkraþjálfarinn Rob Marshall.

Þetta er ekki eina dæmið um að fréttir af liðsvali hafi farið á samfélagsmiðla eftir að stuðningsmenn skoðuðu Fantasy lið hjá leikmönnum.

Liam Cooper, fyrirliði Leeds, tók Gjanni Alioski úr Fantasy liði sínu fyrir leikinn gegn Wolves á föstudaginn. Alioski hafði byrjað 17 leiki í röð en var síðan ekki í liðinu gegn Wolves. Árvökulir stuðningsmenn Leeds tóku eftir þessu og ræddu fjarveru Alioski áður en byrjunarliðin voru opinberuð.

Félög í ensku úrvalsdeildinni hafa ekki bannað leikmönnum sínum að taka þátt í Fantasy deildum en hins vegar eru sum félög farin að banna leikmönnum að velja liðsfélaga sína í lið sín til að ekki komist upp um liðsskipan fyrir komandi leiki.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner